19ágúst

Fallegi bloggarinn ha!!!

Jæja það er svo sem ekkert að frétta nema fór norður á Akureyri yfir helgi aðra helgina í Águst og vorum hjá ömmu... Fórum 4 ég, Svenni, Þórunn og Embla. Við Svenni ákvöðum á seinustu mínutu að kaupa sjónvörp í bílnn og vá það var sko geggjað með 2 skjái og get svo svarið fyrir það að maður vissi ekki af þessum skvísum afturí.
Já þetta var fínasta ferð. Hittum svo Filip og Imbu og fórum með þeim á fiskidaga og það var bara mjög fínt. Fórm svo aftur á Akureyri og fengum okkur nokkra öllara og út að borða með krökkonum þá meina ég bæði stelpurnar og klikkuðu fjölskylduna Filip, Imbu og kríli.Ullandi
En svo var bara ferðini heitið heim og allt gekk bara vel.

Svo er maður bara búin að vera vinna eins og brjálæðingur síðan maður kom heim.
Okkur Svenna langar bara svolítið að flytja norður eftir þessa ferð. Þetta er svo fallegur bær og hugsað vel um hann...
Allavega væri freistandi að skoða málið þegar við erum búin að selja íbúðina okkar hér í Kef.

En jæja hef svo sem ekkert meira að segja vona bara að það verði eitthvað meira áhugaverðara og skemmtilegra næst hehe
19. ágúst 2008 klukkan 22:40
Sandra...
Ruglumbull...
1 athugasemd
23júlí

Jibbí verslunarmannahelgin framundan..

Jájá hvað er ég að segja jibbí yfir ég verð að vinna þannig ekkert jibbí....
En svona samt held ég nenni ekki svona lengur þetta er bara helgi sem er fyllerí og eintómt fylleri og vesen held ég...
Held að þessi helgi sé bara fyrir krakka og einhleypa sem eru að leitast eftir drátt hehe...
Nei nei en mer finnst samt engin friður fyrir fjölskyldufólk á svona háttiðum.. En veit að það á að vera svoleiðis á galtalæk en það er samt slatti sem smyglar með sér áfengi og ég mundi ekki þora fara með Emblu neitt svona fyrr en hún er orðin stærri...

En það er samt vonandi einhver sem er að fara gera eitthvað skemmtilegt...Hlæjandi

En já hef nú ekki mikið að segja... Er bara ekkert búin að gera jú nema var með afmælið hennar Þórunnar á mánudaginn hún var 8 ára og djöfull var það gaman.. Vá peningurin sem barnið fékk... Þetta heppnaðist bara mjög vel og allt var frábært.. Það var stór pollur úti og það var ægilega gaman hjá öllum að hoppa og hlaupa í honum þannig allir lítlu krakkarnir fóru heim rennandi blautir hehe... Þetta er svona...

En jæja ætla ekki að hafa þetta neitt lengra...

En sambandi við könnunina setjið það í comment... Vill vita hvert þið eruð að fara Glottandi Svo ein skilda verðið að deila skemmtilegu og hræðilegu  eða hvernig sem það endar segja mér alla söguna hvernig var og svona... Hehe
23. júlí 2008 klukkan 21:35
Sandra...
Ruglumbull...
2 athugasemdir
25júní

Netið komið

Jæja nú er ég búin að fá netið aftur nema það að talvan er ekki við það er verið að uppfæra hana eða hvernig sem maður segjir þetta hehe..

Já Embla er búin að vera hjá pabba sínum í viku og á viku eftir er alveg að deyja ég sakna hennar svo mikið...
En þetta verður vonandi fljótt að líða því ég er að vinna streit þannga til hún kemur.

Já svo er ég búin að selja hjólið mitt Gráta Já þeir sem vita ekki akkuru þá bara því þetta er bara dýrt og það passar ekki við þegar við erum að reyna vera dugleg að borga upp skuldir og safna...

Líka er ég bara að selja það vegna þess að ég hef ekki tíma í þetta. Það er svo mikið vesen að vera alltaf að reyna redda pössun og svona... Svo nennir Sveinni heldur ekkert allaf að hafa mig. Vill helst bara vera með sínum vinum.

En já fór á fimmtudaginn að hitta bróðri minn sem er 8 ára og er núna í September búin að vera á Ítalíu hjá Hönnu Ástu elstu systir mömmu, og hann hefur bara dafnað vel hjá henni og manninum hennar... Og vá bara á þessum stutta tíma kann hann reiðbrenandi Ítölsku hehe ekkert smá krúttlegt að sjá hann tala hana og bara hreimurin hans... Hann hefur mist smá íslensku en er að ná henni aftur upp...
En vá lítli bróðir er sko ekkert lítill lengur hehe... Og hvað hann er sætur Glottandi Alveg eins og stóra systir hehe NEI djók hann er sko miklu fallegri og sko bara sjarmerinn hann á sko eftir að vera kvennagull þarna úti...

Vá eitt hérna við Svenni vorum að fá nýtt rúm það er 180 x 200 og gamla var bara milli 140 og 160 x 200 og vá virðist ekkert vera mikill munir á milli þessara talna en vá sko það er svo stórt að við vitum ekki í hvaða enda við eigum að sofa á hehe ekkert smá fyndið... Það líka að ég er svo vön að kúra mig úti horn og Svenni fyrir aftan mig (þannig að hann tekur utan um mig) og núna sofum við bara á einum helming... Svo kjánalegt gætum þess venga keypt bara eins manan rúm... En nóg með þetta rúm...

Já hef svo sem ekkert mikið að segja meira... Þannig ég bið bara að heilsa ykkur í bili...Ullandi
25. júní 2008 klukkan 02:23
Sandra...
Ruglumbull...
1 athugasemd
15júní

Sæl verið fólkið

Jæja það er nú ekki mikið að frétta af okkur svo sem..
Fékk hringingu í gær um að Embla er komin með pláss á leiksskólanum í Garðinum. Hún byrjar 25 Águst Hlæjandi Hlakka ekkert smá til... Allir þessir krakkar fyrir hana og svona... Henni á eftir að finnast þetta algjört æði ef ég þekki prinsessuna mína rétt.

Já svo gengur okkur annars bara mjög vel... Er buin að taka nokkrar myndir af okkur svenna hjólast á hjólinu mínu... En á bara eftir að finna myndavélina Óákveðinn
Svo er ég með aðra frétt... Ég er að fara selja hjólið mitt..  I KNOW Gráta Núna ætla ég að fara í tannréttingar á fulla þannig ég verð að selja hjólið... Geðveikt fúllt... En samt ekki kemst svo voðalega sjaldan á það kvort eðer... Svenni hefur sína vini til að fara með en ég náttla engan nema hann... Svo nennir hann ekkert alltaf að hanga með mér að hjóla...

En já nóg með það er í vinnuni og þarf að fara sinna fólkinu.. Á eftir að vera dugleg að blogga og kíkja á síður hja ykkur leið og netið hjá mér er komið í lag.. Hlæjandi
15. júní 2008 klukkan 03:54
Sandra...
Ruglumbull...
Engin athugasemd
07júní

Flutt...

Jæja nú erum við flutt æi Garðinn og búin að koma okkur vel fyrir....
Okkur lýst bara mjög vel á þetta nema bara þessi stutti tími sem við erum búin að vera er búin að vera eins og ævintýri hehe... Allt stíblað, vantar eitthvað dæmi í eldhús vaskin og dæmigert hehe vitlaus sturtuklefi sem við fengum.... Eða sturtubotninn passaði ekki við sturtuveggina og þokkabót vantarði 2 hliðar hehe og fl.. En þetta er samt búið að vera bara mjög fínt á þessum tíma og á vonandi eftir að vera bara mjög gaman og fleiri ævintýri Ullandi

En já svo styttist í að hjólið hans Svenna fari að koma í lag...
Og jaja svo vorum við að kaupa okkur bíl já strákar Glottandi BMW 318i "00 módel hvítan set örugglega mynd af honum inna...
Vá var geðveikt einhverf um daginn hehe og var að telja upp hvað mig langarði að vera fyrir þenna bíl...
Við ætlum að setja sjónvarp og dvd frammi og svo er einn auka skjár til að hafa afturí fyrir krílinn, svo ætlum við að setja á hann krók, og auðvitað dökkar rúður, og svenna langar að stja á hann svona háf eins og er á nýju BMW-onum og má ekki gleyma nýar álfelgur.... Jájá þessi bíll er ekkert ódýr og auðvitað verður maður alltaf að hafa þá flottasta...

En nóg um bíla mál og þetta rugl í mér.
Er bara að vinna og vinna á fullu og ekki nóg með það að ég sé að vinna mína reglulegu vinnu þá er ég að vinna mér inn 60þús auka vinni í ný-ung sem ég var að vinna... Þannig ég vonandi fæ fallegt útborgað um næstumánaðarmót Hlæjandi

En jæja er hætt að bulla og rugla í bili.. kv.
07. júní 2008 klukkan 01:44
Sandra...
Ruglumbull...
Engin athugasemd
24maí

Byrjuð í nýju vinnuni :D

Vá geggjað... Þetta er ekkert smá gaman. Ég hef alveg hætt að kvarta í bakinu síðan ég byrjaði að vinna á Hlévangi sem boðar gott og það eru skemmtilegar kellingar þarna Hlæjandi Og bara mjög gaman. Gamlafólkið heldur manni alveg í þessari vinnu. Þau eru æði manni er strax farið að þykja vænt um þau og vilja gera allt fyrir þau...

Allavega þá er ég bara mjög ánægð með þessa vinnu held ég hafi bara aldrei funndist janf gaman að vinna áður og að fara í vinnuna...

En nóg með vinnuna þá er allt að fara koma hjá Svenna hann fer alveg að fara fá hjólið sitt vonandi erum allavega búin að vera á milljón að vera fifa þetta til og redda hlutum...
Svo er ég búin að setja inn myndir af okkur hjóla Hlæjandi Er líka með myndbönd en set þau inna síðuna mína á YouTube.com og læt ykkur fá slóðina...
Gaman Gaman..

Svo er bara Eurovision framundan held að ég hafi skrifað þetta rétt hehe... Förum í Partý hjá Sigga bróðir Svenna það verður geggjað... eða eins og alltaf þá KARLMENN.. Þeir vilja endilega böslast með sjónvarpið okkar og heimabíó heim til hans sko verður að vera almennilegt sko ohh... Lem hann ef hann nær svo ekki og nær í það daginn eftir er sjónvarpsfíkill hehe sérstaklega þegar ég get ekki horft á það sem ég ætlaði að horfa á hehe... Nóg með það ..
Núna förum við að fara flytja ... Verðum í því að mála á morgun og svona og svo á píparinn sem við erum búin að vera bíða eftir að koma á morgun JIBBÍ... En já annars er ekki mikið að frétta nema Embla er alltaf að læra ný orð og læra það sem hún á ekki að læra t.d. opna ísskápinn og feystirinn Fýldur Því þessi ís-stelpa veit alveg hvar hann er geymdur...

En já er eitthvað voða utan við mig þannig ég skrifa ekki meir í bili .....

Vonandi verður eitthvað spennandi næst... En kíkið á myndirnar
24. maí 2008 klukkan 00:06
Sandra...
Ruglumbull...
Engin athugasemd
13maí

Talandi um sumarfrí

Núna er ég bara í vanda með sumarfríið Óákveðinn Þannig er málið að ég er náttla nýbúin að sækja um nýja vinnu þannig ég fæ ekkert sumarfrí en ef það kemur smá bil sem við Svenni erum í saman þá auðvitað reynir maður að kíkja eitthvað...

Vona mjög mikið að ég komist eitthvað í sumarfrí þótt það væri ekki nema 5 mín frá Reykjavík...

En já við fórum að hjóla á mínu hjóli tókum nokkrar myndir vorum þrjú á mínu hjóli... Svenni, Matta (systir Svenni) og ég.. Vá gaman sko en samt leiðinlegt að skiptast svona á...

En já allt að stittast í nýju íbúðina og nýju vinnuna Hlæjandi
En hef ekki mikið að segja eins og er þannig ég kveð að sinni...
13. maí 2008 klukkan 21:46
Sandra...
Ruglumbull...
1 athugasemd
02maí

Karlmenn

Já hver kannast ekki við það þegar karlmenn kunna allt og geta allt... Jamm ég kannast mikið við það...
Svenni var að laga til í hjólinu sínu og setja nýja olíusýu og allt þetta drasl sem þarf að gera og getið hvað hann er búin að bræða úr hjólinu sýnu sem guð má vita hvað það mu kosta okkur...
En jæja svona er þegar menn þykjast kunna allt og geta allt... Vilja ekki láta atvinnu menn gera þetta... En svona er þetta víst.. Bömmer....

En já annars er ekkert mikið að frétta af okkur hér í keflavíkinni... Hlakka bara til að byrja í nýju vinnuni Hlæjandi Byrja þar 19 maí..

Svo fer að styttast í það að hún Embla mín fari í leiksskóla... Stóra stelpan.. Hehe fór um daginn að sækja litlu frænku í leiksskólan og ákvað að leifa henni Emblu að koma með inn hehe hún var eins og ég veit ekki hvað hún hljóp um alla ganga og sá alla krakana þarna að leika sér og hún var bara eins og orkubolti maður var í því að hlaupa á eftir henni ... Það á sko eftir að vera svaka stuð þegar hún býrjar.. Hún kemst vonandi í leiksskólan í garðinu í byrjun eða miðjan águst...

Vá mér hlakkar ekkert smá til fyrir hennar hönd því hún er svo stór alltaf í sér þannig hún á sko ekki eftir að væla þergar ég fer út eftir að vera búin að skutla henni þá er ég bara gleymd og drífa sig að leika Hlæjandi

Svo flytjum við eina ferina en úti garð og hún Sara vínkona ætlar að leiga íbúðina okkar á meðan.. Er ekkert smá ánægð með að fá hana til að leigja hana því þá veit maður að íbúðinn mans á eftir að vera í góðum hondum... Veit líka að hún mun hugsa vel um ísskápinn minn  hehe verð að leigja hann með því hann kemst svo ekki með okkur í garðinn og erum náttla búin að taka hluta af innréttinguni fyrir ísskápinn... Þeir sem eru kannksi ekkert að skila þetta ísskápa mál þá er hann tvöfaldur...

Já svo eitt leiðinlegt líka ætluðum við í sumar til Akureyrar til ömmu og leifa Emblu að vera hjá henni á meðan við færum að hjóla nei nei þá fengum við hann ekki Fýldur Bara fúlt.. En það reddast fáum þá bara að gista hjá ömmu.. En hitt hefði samt verið betra sko hehe...

En já er hætt að bulla..
Ætla að óska henni Sibbu frænku til hamingju með giftinguna.. Vonandi gengur allt ver þarna úti og hlökkum til að fá þig heim..
02. maí 2008 klukkan 23:28
Sandra...
Ruglumbull...
2 athugasemdir
21apríl

Dæmd til dauða...

Kona dæmd til dauða fyrir að hafa orðið 2 syni sínum að bana.... Ojj bara...


Ég ætlaði að setja þetta sem svar í þræðinum "Fangar á Death Row í Texas..." en ákvað að setja þetta sem sér þráð. - Sorry ég hef áráttu fyrir því að koma frá mér því sem mér finnst áhugavert.
Langar svo að heyra skoðanir fleiri á þessu máli og hvort e-r muni kannski eftir því og hafi fylgst með. :)

Kona var dæmd til dauða fyrir að hafa myrt syni sína tvo, 5 og 6 ára, að nóttu til í júní 1996. Þeir sváfu á jarðhæð og hún hafði sofið í sófanum þar. Faðir þeirra og yngsta barnið sváfu á efri hæð hússins.
Er hún sögð hafa stungið þá til dauða og síðar veitt sjálfri sér sár og eftir það vakið föðurinn og hringt á neyðarlínuna.
Hún segist hafa sofið (minnisleysi) í gegnum atburðinn en vaknað við að sjá í bakið á manni hlaupa út.
Hún var talin hafa drepið börnin vegna þess að þau fittuðu ekki inn í þann lífstíl sem henni fannst ákjósanlegur.
Hægt er að sjá stutta lýsingu á þessu hérna:
http://www.tdcj.state.tx.us/statistics/deathrow/drowlist/routier.jpg

Hægt er að lesa sér til um nánast allt sem tengist málinu á stuðningssíðu Dariel (móðurinnar), þar er hægt að sjá myndir af áverkum hennar og fleiru, hægt að hlusta á símtalið sem hún átti þegar hún hringdi á 911 og lesa sér til um vitnisburði, sönnunargögn, máltökuna og margt fleira.
http://www.fordarlieroutier.org/
21. apríl 2008 klukkan 21:27
Sandra...
Ruglumbull...
1 athugasemd
19apríl

Ojjj

Oj ég sá þetta á bloggsíðuni hennar Karenar...

http://doctore.blog.is/blog/doctore/entry/365288/
19. apríl 2008 klukkan 21:11
Sandra...
Ruglumbull...
1 athugasemd

Auglýsing

Könnun

Hvert á að fara um verlsunarm.helgina

Innskráningar kubbur